“Imagine” – Norðurhálendi Skotlands – eins og John Lennon gerði.Nú í fyrsta skipti í markaðssetningu hálanda Skotlands er lögð áhersla á tengsl John Lennon við æskustöðvar sínar. Í sumarleifum sínum, er Lennon var á aldrinum 9-14 dvaldi hann löngum stundum í Durness í Sutherland héraði í hálöndum Skotlands. Jafnvel eftir að hann var orðinn fullorðin snéri hann aftur þangað með konu sinni Yoko Ono – og lifði af alvarlegt bílslys á einbreiðum vegi! Vonast er til að með því átaki og heimasíðu www.northhighlandsscotland.com sem nú fer af stað, en hans konunglega hátign og hertogi af Rothesay Karl Bretaprins er verndari átaksins, megi laða að gesti víðsvegar að úr heiminum til að sjá þá afskektu og hrjúfu fegurð sem átti þátt í að móta einn mesta sönglagahöfund síðustu aldar. Við formlega opnun verkefnisins sagði hans konunglega háting Karl Bretaprins þetta: “Hvað þetta svæði er ríkt hefur alltaf haft mikil áhrif á mig, ekki bara hvað varðar náttúrufegurð heldur líka hvað varðar hefðir, tónlist og menningu sem að er mjög dýrmæt. Það er einlæg von mín að sem flestir kynni sér þennan sérstaka stað í veröldinni af eigin raun og átti sig á vermæti hans.” Svæðið er markaðssett undir yfirskriftinni “Pleasure In the Extreme”. En svæðið hafði slík áhrif á Bítilinn fyrrverandi að hann samdi hið áhrifamikla lag “In My Life” með líf sitt í hálandaþorpinu Durness í huga en þorpið er hið norðvestlægasta á meginlandi Bretlands. Á heimasíðunni er athyglinni einnig beint að sögu svæðisins, arfleið þess, ættfræði og menningu sem og að listum og viðburðum. Einnig er sjónum beint að afþreyingu t.d. gönguferðum, hjólreiðum, dýralífi, veiði, golfi og ævintýraferðum. Þar er einnig að finna ítarlegar upplýsingar um gistingu og yfirlit yfir bæi og þorp. Svo vel hittist á að þessi kynning á hinum lítt þekktu tengslum John Lennon við nyrsta hluta Skotlands kemur á sama tíma og haldið er upp á 40 ára afmæli plötunnar Sgt. Pepper´s Lonely Hearts Club Band sem er ein þekktasta plata allra tíma en konunglega breska póstþjónustan hefur nú einmitt gefið út frímerkjaröð með myndum af frægustu plötuumslögum Bítlanna. 14. febrúar síðastliðinn var einnig gefin út bókin “The Next Big Thing” hjá forlaginu Balnakeil Press sem fjallar um tengsl Lennon við Durness. Í farvatninu er síðan að gera mynd um líf Lennon í Durness. Allt þetta gerir það að verkum að opnun vefsíðunnar www.northhighlandsscotland.com gæti ekki komið á betri tíma en einmitt þessum. Náfrændi Lennon, Stanley Parkes hafði þetta að segja um tengsl frænda síns við hálönd Skotlands: “John gleymdi aldrei þeim tíma sem að hann átti í Durness. Sá tími var honum mjög dýrmætur. Hann dáði óbyggðirnar. Hann var 9 ára gamall þegar hann fyrst kom með fjölskyldu okkar upp til Durness og dvaldi í húsi okkar þar. Húsið var í eigu stjúpföður míns, Robert Sutherland og John heillaðist af óbyggðunum og víðáttunni sem einkennir staðinn. Við stunduðum veiðar og John fór oft einn upp í hlíðarnar til að teikna og skrifa ljóð. Hann var mikill göngumaður og naut þess að veiða. Hann hefði orðið fyrirtaks óðalsbóndi.” Minnisvarði um tengsl Lennon við Durness var afhjúpað árið 2002 og var það frændi Lennon, Stanley Parks sem afhjúpaði minnisvarðann. En nú er komið að því að tengsl Lennon við Durness verði formlega í sviðsljósinu með opnun hinnar nýju heimasíðu samtaka ferðaþjónustunnar í hálöndum Skotlands www.northhighlandsscotland.com til að reyna að draga að ferðamenn á þetta svæði sem að skipti hið mikla tónskáld svo miklu máli. “Það gleður mig mikið að tengsl Lennon við Durness skuli fá þessa athygli. Ég vona að þetta verði til þess að fleiri fái að kynnast fegurð og töfrum þessa svæðis á sama hátt og hann gerði.” Sagði Parks. Það er hans konunglega hátign Karl Bretaprins sem er verndari verkefnisins en hann eyðir árlega hluta sumarsins í Mey kastala sem var áður heimili ömmu hans, drottningarmóðurinnar í Caithness. eadingSubheadingSome text. |
|
||||||||||






